Fréttir og tilkynningar


Skattframtal 2024 - skilafrestur til 14. mars

1.3.2024

Opnað hefur verið fyrir skil á skattframtali einstaklinga 2024, vegna tekna 2023, á þjónustuvef Skattsins í dag. Frestur til að skila er til 14. mars. Allar helstu upplýsingar eru foráritaðar inn á framtalið og því fljótlegt og auðvelt að yfirfara upplýsingar, bæta við ef eitthvað vantar og staðfesta að lokum.

Kisa að skrifa með penna í dagbók. Myndin er gerð með aðstoð gervigreindar.Opna framtalið á þjónustuvef

Auðkenning

Til að opna framtalið þarf að nota rafræn skilríki eða veflykil. Unnt er að panta veflykil og fá hann sendan í heimabanka. Mælt er með notkun rafrænna skilríkja sem öruggari innskráningu.
Upplýsingar um rafræn skilríki

Auðkenning barna yngri en 18 ára

Þau sem náðu 16 ára aldri á árinu 2023 þurfa að skila skattframtali í fyrsta sinn nú árið 2024. Þau sem ekki eiga rafræn skilríki geta sótt um veflykil og nýtt hann til auðkenningar á þjónustusíðu. Mögulegt er að fá veflykil sendan í pósti á lögheimili eða sendan í heimabanka viðkomandi.
Upplýsingar um rafræn skilríki barna undir 18 ára
Sækja veflykil

Erlendis búsettir

Þau sem búsett eru erlendis geta þurft að skila skattframtali á Íslandi þrátt fyrir búsetu erlendis, t.d. ef viðkomandi hefur fengið tekjur frá Íslandi á árinu 2023, á eignir á Íslandi eða sækist eftir skattalegri heimilisfesti, svo dæmi séu tekin.

Eigi aðilar erlendis búsettir þess ekki kost að nýta sér rafræn skilríki og eigi ekki nú þegar virkan veflykil er hægt að sækja um að fá nýjan veflykil sendan. Fylla þarf út þar til gert form og verður beiðni um veflykil afgreidd eins fljótt og auðið er.
Sækja veflykil erlendis búsettra

Framtalsaðstoð

Við veitum aðstoð í síma 442 1414 og tökum á móti fyrirspurnum á netfanginu framtal@skatturinn.is. Þá getur spjallmennið svarað allskyns spurningum um framtalið.

Leiðbeiningar

Framtalsleiðbeiningar er hægt að nálgast inni í framtalinu með því að smella á bláa spurningamerkið við hvern kafla. Einnig er spjallmennið okkar komið á þjónustuvefinn og hægt að fá svör við mörgum spurningum þar. Spjallmennið talar bæði íslensku og ensku.

Þá er einnig hægt að fá leiðbeiningar í bæklingaformi. Vakin er sérstök athygli á einfölduðum leiðbeiningum þar sem stiklað er á stóru yfir helstu atriði sem hafa þarf í huga við framtalsskil. Sá bæklingur er aðgengilegur á sjö tungumálum.
Framtalsleiðbeiningar


Álagning

Niðurstaða álagningar mun liggja fyrir eigi síðar en 31. maí 2024 og verður hún birt á þjónustuvef Skattsins.

Opna þjónustuvef Skattsins 


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum