Ákvarðanir ríkisskattstjóra

Ákvörðun 8/2024 um sátt

6.12.2024

Þann 25. nóvember 2024 gerðu ríkisskattstjóri og Endurskoðun og ráðgjöf ehf. (hér eftir félagið), kt. 671086-1209, með sér samkomulag um að ljúka máli félagsins með sátt vegna brota þess á ákvæðum laga nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka (hér eftir oftast pþl.).

Sáttin var gerð á grundvelli 1. mgr. 47. gr. pþl. og reglna ríkisskattstjóra nr. 1132/2020, um sáttagerðir samkvæmt lögum nr. 140/2018.

Samkvæmt l-lið 1. mgr. 2. gr. pþl. falla endurskoðunarfyrirtæki, endurskoðendur, skattaráðgjafar og aðilar sem færa bókhald eða sinna bókhaldsþjónustu fyrir þriðja aðila gegn endurgjaldi undir gildissvið laganna. Sem endurskoðunarfyrirtæki fellur starfsemi félagsins því öll undir gildissvið laganna.

Athugun ríkisskattstjóra varðaði einnig framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða af hálfu félagsins en samkvæmt 11. tölul. 1. mgr. 3. gr. laga nr. 68/2023 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna er tilkynningarskyldur aðili samkvæmt lögunum skilgreindur sem aðili sem fellur undir 2. gr. pþl.

Ríkisskattstjóri hefur eftirlit með því að tilkynningarskyldir aðilar sem falla undir l–u-liði 1. mgr. 2. gr. pþl. fari að ákvæðum laganna og reglum og reglugerðum settum á grundvelli þeirra, sbr. 2. mgr. 38. gr. pþl. Þá hefur ríkisskattstjóri eftirlit með því að sömu tilkynningarskyldir aðilar fari að ákvæðum 10. og 13. gr. laga nr. 68/2023, sbr. 2. mgr. 26. gr. laganna.

Meginatriði samkomulagsins eru sem hér segir:

1. Félagið viðurkennir að hafa brotið gegn eftirfarandi ákvæðum laga nr. 140/2018:

  1. Áreiðanleikakönnun var ekki framkvæmd í öllum þeim tilvikum sem mælt er fyrir um í 8. gr. pþl., sem telst brot gegn 3. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl.
  2. Fullnægjandi upplýsinga um raunverulegan eiganda var ekki aflað í samræmi við e-lið 1. mgr. 10. gr. pþl., sem telst brot gegn 4. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl.
  3. Annars vegar með tilvikum þar sem ekki var framkvæmd fullnægjandi athugun á því hvort viðskiptamaður og raunverulegur eigandi væri í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla samkvæmt 1. mgr. 17. gr. pþl. og hins vegar með tilvikum þar sem ekki var framkvæmd athugun á því hvort raunverulegur eigandi væri í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla samkvæmt 1. mgr. 17. gr. pþl., sem telst brot gegn 11. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl.

2. Félagið fellst á að greiða sekt að fjárhæð 1.500.000 kr.

3. Félagið skal framkvæma fullnægjandi úrbætur innan tilgreindra tímamarka í samræmi við úrbótakröfu ríkisskattstjóra í viðauka við sáttargerðina.

Málavextir, málsástæður og lagarök

Með bréfi óskaði ríkisskattstjóri eftir upplýsingum og gögnum frá félaginu á grundvelli 3. mgr. 38. gr. laga nr. 140/2018 og 3. og 4. mgr. 26. gr. laga nr. 68/2023. Félagið varð við beiðni ríkisskattstjóra og afhenti umbeðin gögn.

Við athugun ríkisskattstjóra kom í ljós að félagið hafði ekki í öllum tilvikum framkvæmt áreiðanleikakannanir á viðskiptamönnum með fullnægjandi hætti. Þá kom í ljós að áreiðanleikakannanir höfðu ekki verið framkvæmdar á aðilum í samræmi við ákvæði III. kafla laga nr. 140/2018 í öllum þeim tilvikum sem mælt er fyrir um í 1. mgr. 8. gr. laganna. Auk þess voru dæmi um tilvik þar sem fullnægjandi upplýsinga um raunverulegan eiganda hafði ekki verið aflað í samræmi við e-lið 1. mgr. 10. gr. pþl. og að athugun á því hvort raunverulegur eigandi væri í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla var ekki fullnægjandi. Félagið hefur því ekki starfað að öllu leyti samkvæmt skilyrðum laga nr. 140/2018 og teljast framangreind brot varða stjórnvaldssekt samkvæmt 3., 4. og 11. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl.

Sektarfjárhæð

Samkvæmt 1. mgr. 44. gr. a pþl. skal, við ákvörðun um tegund og umfang viðurlaga, tekið tillit til allra atvika sem máli skipta, þ.m.t. eftir því sem við á alvarleika brots, hvað brotið hefur staðið yfir lengi, ábyrgðar hins brotlega hjá lögaðilanum, fjárhagsstöðu hins brotlega, ávinnings af broti eða taps sem forðað er með broti, hvort brot hafi leitt til taps þriðja aðila, hvers konar mögulegra kerfislegra áhrifa brotsins, samstarfsvilja hins brotlega, fyrri brota og hvort um ítrekað brot er að ræða. Líta skal til sömu atriða við ákvörðun stjórnvaldssektar samkvæmt lögum nr. 68/2023, sbr. 2. mgr. 30. gr. laganna og áður 2. mgr. 20. gr. laga nr. 64/2019.

Sektarfjárhæð er ákvörðuð í samræmi við reglur ríkisskattstjóra nr. 1132/2020, um sáttagerðir samkvæmt lögum nr. 140/2018. Samkvæmt 1. mgr. 3. gr. reglnanna er miðað við að sektarfjárhæð sé hlutfallslega lægri en sem ætla má að fjárhæð stjórnvaldssektar gæti numið að teknu tilliti til mögulegra þyngingar- og mildunarsjónarmiða, auk þess sem litið er til þess á hvaða stigi meðferð máls er þegar því er lokið með sátt.

Í bréfi ríkisskattstjóra var félaginu tilkynnt um frumniðurstöður úr athugun ríkisskattstjóra og að mati ríkisskattstjóra væru brot félagsins þess eðlis að varða stjórnvaldssekt samkvæmt 1. mgr. 46. gr. pþl. Að teknu tilliti til frumniðurstaðna embættisins mátti ætla að fjárhæð stjórnvaldssektar kynni að nema 3.000.000 kr. að teknu tilliti mögulegra þyngingar- og mildunarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 44. gr. a pþl.

Í samskiptum ríkisskattstjóra og félagsins lýsti félagið yfir vilja til að ljúka málinu með sátt. Í svarbréfi félagsins voru gerðar athugasemdir við nánar tiltekin atriði í málinu. Ríkisskattstjóra þótti athugasemdir félagsins ekki hafa áhrif á afstöðu embættisins til málsins, tilkynningu um frumniðurstöður eða ætlaða sektarfjárhæð.

Við mat á fjárhæð sektar leit ríkisskattstjóri til þess að félagið hafði ekki framkvæmt áreiðanleikakannanir á nema hluta af viðskiptamönnum frá gildistöku laga nr. 140/2018 og hafði félagið því ekki starfað í samræmi við kröfur sem gerðar eru samkvæmt lögunum. Þá var litið til þess að félagið hafði ekki framkvæmt áreiðanleikakannanir á öllum viðskiptamönnum félagsins við fyrirspurn ríkisskattstjóra. Einnig var litið til þess að félagið var afar hreinskilið með stöðu mála og dró ekki dul á að framkvæmd væri ófullnægjandi. Auk framangreinds leit ríkisskattstjóri til fjárhagsstöðu félagsins eins og hún birtist í ársreikningi félagsins fyrir árin 2022 og 2023. Að lokum leit ríkisskattstjóri til fyrri framkvæmdar embættisins í málum sem varða aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og alþjóðlegar þvingunaraðgerðir, bæði hjá aðilum á sama markaði sem og heildarframkvæmdar í málaflokknum.

Að mati ríkisskattstjóra leiddi framangreint til þess að ætluð sektarfjárhæð yrði alls að fjárhæð 3.000.000 kr.

Með vísan til 2. mgr. 3. gr. reglna ríkisskattstjóra nr. 1132/2020 nam fjárhæð sáttar 50% af ætlaðri sektarfjárhæð þar sem málinu taldist lokið á fyrri stigum, eða alls að fjárhæð 1.500.000 kr. (3.000.000 kr. * 50%).

Réttaráhrif og opinber birting viðurlaga

Samkomulag þetta er gert á grundvelli 1. mgr. 47. gr. laga nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og reglna ríkisskattstjóra nr. 1132/2020, um sáttagerðir samkvæmt lögum nr. 140/2018.

Félagið brýtur gegn samkomulaginu ef það greiðir ekki umsamda sektarfjárhæð, lýkur ekki úrbótum í samræmi við viðauka við samkomulagið, gaf rangar upplýsingar um málsatvik eða leyndi upplýsingum sem máli skipta. Einnig geta önnur atvik leitt til þess að félagið teljist hafa brotið gegn sáttinni. Verði félagið uppvíst að því að brjóta gegn samkomulaginu getur ríkisskattstjóri fellt það úr gildi og tekið málið til meðferðar á ný.

Með vísan til 53. gr. pþl. og reglna ríkisskattstjóra nr. 1131/2020, um opinbera birtingu stjórnsýsluviðurlaga samkvæmt lögum nr. 140/2018, um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, er meginreglan sú að birta skuli opinberlega stjórnsýsluviðurlög sem ákveðin eru í samræmi við 46.–47. og 50.–51. gr. pþl.

Til baka Prenta

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum