Lokunarstyrkur 3 – leiðbeiningar við umsókn

Lokunarstyrkur, sem hér eftir verður nefndur „lokunarstyrkur 3“, var vegna stöðvunar á tiltekinni starfsemi í tengslum við sóttvarnaaðgerðir á tímabilinu 18. september til og með 17. nóvember 2020, þ.m.t. starfsemi sem var gert að hafa lokað lengur. 

Sótt um fyrir félag

Sótt um fyrir sjálfstætt starfandi einstaklinga

Umsókn um lokunarstyrk

Þeir einir fá upp umsóknina sem eru á launagreiðendaskrá og eru heimilisfastir á Íslandi á umsóknardegi.

 

Við innskráningu er athugað hvort umsækjandi uppfylli tiltekin frumskilyrði. Ef skilyrði eru ekki uppfyllt kemst viðkomandi ekki lengra með umsóknina.

Mynd af skilmálumFrumskilyrði sem umsækjandi þarf að uppfylla:

 

  • Ótakmörkuð skattskylda á Íslandi
  • Stundar atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi
  • Var gert skylt að stöðva starfsemi sína
  • Tekjur á lokunartímabili a.m.k. 75% lægri en á (jafn löngu) viðmiðunartímabili
  • Rekstrartekjur 2019 a.m.k. 4,2 millj. kr.
  • Ekki í vanskilum með opinber gjöld og skil á gögnum
  • Ekki tekinn til slita eða gjaldþrotaskipta

 

Lesa má meira um framangreind skilyrði.

Ef umsækjandi stoppar ekki við fyrstu athugun þá opnast fyrir það að halda áfram með umsóknina. Næst er þá farið yfir ýmis skilyrði sem þarf að uppfylla til þess að geta átt rétt á lokunarstyrk 3 og þarf umsækjandi að haka við að hann uppfylli þau neðst í textaboxinu. Eftir það getur hann haldið áfram með umsóknina.

Tegund starfsemi

Umfang rekstrar og tekjufall

Tekjufall

Ríkisaðstoð

Tengdir aðilar

Fjöldi launamanna og rekstrarkostnaður

Lok umsóknar


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum